Tilþrifin: Ósáttir við sigurmark Liverpool

Naby Keita skoraði sigurmark Liverpool í 1:0-útisigri á Newcastle í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Keita skoraði markið eftir að James Milner vann tæklingu við Fabian Schär á miðsvæðinu og voru leikmenn og þjálfarar Newcastle mjög ósáttir með að markið fengi að standa.

Milner fór hinsvegar fyrst í boltann og mat dómarinn sem svo að tæklingin væri lögleg og markið stóð. 

Svipmyndir úr leiknum má sjá í spilaranum hér fyrir ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert