Mörkin: Niðurlægjandi tap hjá United

Brighton gerði sér lítið fyrir og vann 4:0-stórsigur á heimavelli gegn Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.

Fyrstu tvö mörkin, sem Moisés Caicedo og Marc Cucurella skoruðu, voru sérlega falleg en Pascal Gross og Leandro Trossard gerðu mörk þrjú og fjögur.

Svipmyndir úr leiknum má sjá í spilaranum hér fyrir ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert