Everton að fá leikmann Tottenham

Harry Winks í leik með Tottenham gegn Liverpool.
Harry Winks í leik með Tottenham gegn Liverpool. AFP

Enska knattspyrnufélagið Everton er ansi líklegt til að kaupa miðjumanninn Harry Winks af Tottenham en bæði lið leika í ensku úrvalsdeildinni.

Sky greinir frá að Tottenham hafi beðið enska miðjumanninn um að finna sér nýtt félag, þar sem hann er ekki í myndinni hjá knattspyrnustjóranum Antonio Conte. Frank Lampard, knattspyrnustjóri Everton, er mikill aðdáandi leikmannsins. 

Winks var aðeins sex sinnum í byrjunarliði Tottenham í ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð. Þá færðist hann aftar í goggunarröðina er félagið keypti Yves Bissouma frá Brighton á dögunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert