Varnarmaðurinn Joe Gomez er ekki á förum frá Liverpool eins og margir bjuggust við en enska knattspyrnufélagið tilkynnti í dag að hann hefði skrifað undir langtímasamning.
Lengd samningsins er ekki tilgreind af hálfu Liverpool en Sky Sports segir að hann sé til fimm ára, eða ársins 2027.
Gomez er 25 ára gamall og hefur verið í röðum Liverpool í sjö ár en hann kom til félagsins árið 2015 frá Charlton. Hann hefur leikið 87 úrvalsdeildarleiki fyrir Liverpool en aðeins náð að spila 15 leiki í deildinni undanfarin tvö tímabil vegna þrálátra meiðsla. Alls hefur hann leikið 142 mótsleiki fyrir félagið en á enn eftir að skora sitt fyrsta mark á ferlinum.
Gomez, sem leikur ýmist sem miðvörður eða bakvörður, á 11 landsleiki að baki fyrir England.