Newcastle lagði Fulham að velli, 1:0, í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.
Alexander Isak skoraði sigurmark Newcastle á lokamínútu leiksins en fyrr í leiknum hafði Aleksandar Mitrovic farið illa að ráði sínu á vítapunktinum. Hann gat þar komið Fulham yfir en rann í aðhlaupinu og sparkaði tvisvar í boltann.
Öll helstu tilþrif leiksins má sjá hér að ofan.
Leikur Newcastle og Fulham var sýndur beint á Síminn Sport.