Arteta þurfti að halda aftur af Xhaka (myndskeið)

Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal, þurfti að halda aftur af Granit Xhaka, miðjumanni liðsins, eftir sigurinn gegn Tottenham í ensku úrvalsdeildinni á Tottenham Hotspur-vellinum í Lundúnum á sunnudaginn.

Arsenal fagnaði sigri í leiknum, 2:0, en það sauð allt upp úr í Lundúnum í leikslok eftir að stuðningsmaður Tottenham sparkaði í Aaron Ramsdale, markvörð Arsenal.

Leikmenn liðanna tókust svo á á vellinum eftir að dómari leiksins Craig Pawson hafði flautað til leiksloka.

Xhaka ætlaði að blanda sér í málin  áður en Arteta hljóp að Svisslendingnum og dró hann inn í klefa.

Myndband af atvikinu má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert