Sá markahæsti frá í tvo mánuði

Rodrigo verður frá næstu tvo mánuði.
Rodrigo verður frá næstu tvo mánuði. AFP/Geoff Caddick

Spænski knattspyrnumaðurinn Rodrigo, framherji enska úrvalsdeildarliðsins Leeds United, verður frá keppni næstu tvo mánuðina vegna ökklameiðsla.

Rodrigo meiddist í 3:1-sigri Leeds á Accrington í 4. umferð enska bikarsins um síðustu helgi. Þarf hann á aðgerð að halda og verður frá keppni þar til í maí.

Spánverjinn er markahæsti leikmaður Leeds á leiktíðinni með tólf mörk í öllum keppnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert