Gylfi: Hef séð þá fagna titlum minna en þessum sigri

Í Vellinum á Símanum Sport í gær ræddu þeir Gylfi Einarsson, Bjarni Þór Viðarsson og Tómas Þór Þórðarson um hvaða lið er líklegast til þess að vinna ensku úrvalsdeildina í ár.

Bæði Gylfi og Bjarni Þór voru sammála að Manchester City myndi reynast hlutskarpast eina ferðina enn.

„Við sáum eftir leikinn á móti Newcastle hversu mikla þýðingu þessi sigur hafði fyrir liðið. Ég hef séð þá fagna titlum minna en eftir þennan leik,“ sagði Gylfi og vísaði til 3:2-sigurs um þarsíðustu helgi.

„Það er reyndar hárrétt!“ sagði Tómas Þór og skellti upp úr.

Umræðurnar má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan, en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samstarfi við Símann Sport.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert