Silva heim til Brasilíu

Thiago Silva kveður Evrópuboltann
Thiago Silva kveður Evrópuboltann AFP/Adrian Denis

Miðvörðurinn Thiago Silva yfirgefur Chelsea og ensku úrvalsdeildina í sumar og gengur til liðs við uppeldislið sitt, Fluminense í Brasilíu.

Silva er 39 ára gamall og var lengi meðal bestu varnarmanna heims. Silva var fyrirliði AC Milan og Paris Saint-Germain áður en hann gekk til liðs við Chelsea árið 2020. 

Á ferli sínum vann Silva Meistaradeild Evrópu með Chelsea, frönsku deildina sjö sinnum með PSG og ítölsku deildina með AC Milan. Að auki vann hann Suður-Ameríku bikarinn með Brasilíu en hann lék 110 landsleiki fyrir þjóð sína.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert