Af fimm sem koma til greina sem knattspyrnustjóri ársins í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta eru fjórir af þeim spænskir. Jürgen Klopp er sá fimmti á blaði.
Þrjú af fjórum efstu liðum deildarinnar eru þjálfuð af Spánverjum. Arsenal af Mikel Arteta, Pep Guardiola hjá Manchester City og Aston Villa undir stjórn Unai Emery situr í fjórða sæti.
Andoni Iraola þjálfari Bournemouth og Jürgen Klopp hjá Liverpool eru einnig tilnefndir. Hægt er að kjósa um þjálfara ársins hér
BREAKING: The nominees for the Premier League Manager of the Season have been revealed 👔🏆 pic.twitter.com/OfmZUrKhzY
— Sky Sports Premier League (@SkySportsPL) May 9, 2024