Valinn bestur eftir magnaðan mánuð

Cole Palmer er leikmaður mánaðarins á Englandi.
Cole Palmer er leikmaður mánaðarins á Englandi. AFP/Henry Nicholls

Cole Palmer, leikmaður Chelsea, hefur verið valinn leikmaður aprílmánaðar í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.

Palmer fór algjörlega á kostum í apríl en hann skoraði sjö mörk í fjórum leikjum ásamt því að leggja annað upp. 

Chelsea-maðurinn hefur átti frábært tímabil með Chelsea og skorað 21 mark. Þá er hann fyrsti leikmaður Chelsea til að hljóta verðlaunin síðan Eden Hazard vann þau í september 2018. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert