Kingsley Coman leikur ekki meira með þýsku meisturunum í Bayern München á þessu ári að því er þýskir fjölmiðlar greina frá í dag.
Ökklameiðslin sem Coman varð fyrir í 1. umferð þýsku 1. deildarinnar reyndust meiri en menn héldu í fyrstu og þykir nú ljóst að hann verður frá keppni út þetta ár.
Coman, sem er 22 ára gamall franskur landsliðsmaður, ætlaði sér stóra hluti á þessu tímabili en nú tekur við endurhæfing hjá honum næstu mánuði.