Barcelona hefur staðfest að Lionel Messi verði frá keppni næstu þrjár vikurnar vegna meiðsla sem hann varð fyrir í leiknum gegn Sevilla í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu í kvöld.
Messi brákaðist á hendi og þurfti að fara af velli á 26. mínútu en skömmu áður hafði hann komið sínum mönnum í 2:0 en Barcelona vann leikinn 4:2.
Messi missir því af leiknum á móti Inter í Meistaradeildinni á miðvikudaginn og hann verður fjarri góðu gamni í leikjunum á móti Reaal Madrid og Rayo Vallecano í spænsku deildinni.