Noregur vann Algarve-bikarinn

Leikmenn Noregs fagna marki.
Leikmenn Noregs fagna marki. Ljósmynd/Twitter-síða norska sambandsins

Noregur vann sigur í Algarve-bikarnum í knattspyrnu sem lauk í Portúgal í kvöld þar sem Ísland hafnaði í 9. sæti eftir sigur gegn Portúgal 4:1 eins og áður hefur komið fram hér á mbl.is.

Noregur og Pólland mættust í úrslitaleiknum og höfðu Norðmenn betur 3:0 með mörkum frá Isabell Herlovsen, Caroline Graham Hansen og Kærina Sævik.

Kanada og Svíþjóð áttust við í leiknum um bronssætið. Staðan eftir venjulegan leiktíma var 0:0 en Kanada hafði betur í vítaspyrnukeppni 6:5.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert