Alex Morgan, ein besta knattspyrnukona í heimi, á von á stúlkubarni með eiginmanni sínum Servando Carrasco, sem einnig er atvinnumaður í fótbolta.
Morgan var markahæst á HM í Frakklandi í sumar ásamt Megan Rapinoe og Ellen White með sex mörk.
Morgan á að eiga í apríl á næsta ári, þremur mánuðum fyrir Ólympíuleikana í Tókýó, og er því ólíklegt að hún verði með bandaríska landsliðinu á leikunum.
Morgan hefur skorað 107 mörk í 169 landsleikjum og orðið heimsmeistari 2015 og aftur í sumar. Hún var valin í lið ársins af FIFA árið 2016, 2017 og í ár.