Kai Havertz, einn efnilegasti knattspyrnumaður heims, vill fara til Bayern München þegar félagsskiptaglugginn verður opnaður en hann leikur í dag með Bayer Leverkusen í þýsku 1. deildinni.
Havertz er aðeins tvítugur að árum og hefur verið orðaður við flest stærstu lið Evrópu í vetur. Spænsku stórveldin Barcelona og Real Madríd voru sögðu hafa gefist upp í kapphlaupinu samkvæmt spænskum fjölmiðlum sem töldu Liverpool líklegasta áfangastað leikmannsins. Það var eftir að forráðamenn félagsins frá Bítlaborginni ræddu við umboðsmann leikmannsins en Þjóðverjinn vill halda sig í heimalandinu og spila fyrir besta liðið þar.
Það er talið næsta víst að Havertz yfirgefi Bayer Leverkusen í sumar en samkvæmt Sky í Þýskalandi eru deildarmeistararnir í Bayern líklegastir til að hreppa ungstirnið. Havertz spilaði sinn fyrsta leik fyrir Bayer Leverskusen árið 2016 en hann verður 21 árs gamall 11. júní næstkomandi. Þá á hann að baki sjö landsleiki fyrir Þýskaland þar sem hann hefur skorað eitt mark.