Norðmaðurinn skoraði tvö í fyrsta leik

Erling Braut Haaland skorar sitt annað mark í dag.
Erling Braut Haaland skorar sitt annað mark í dag. AFP

Erling Braut Haaland heldur áfram að hrella markverði því Norðmaðurinn skoraði tvö mörk í öruggum 3:0-sigri Borussia Dortmund á Borussia Mönchengladbach í 1. umferð þýsku Bundesligunnar í dag. 

Haaland skoraði annað og þriðja mark Dortmund eftir að Giovanni Reyna hafði komið liðinu yfir á 35. mínútu. Hefur norski framherjinn skorað 15 mörk í 16 deildarleikjum með Dortmund.  

Hertha Berlín fer einnig vel af stað. Liðið heimsótti Werder Bremen og vann öruggan 4:1-sigur. Peter Pekarík, Dodi Lukebakio, Metheus Cunha og Jhon Córdoba skoruðu mörkin. 

Þá vann Freiburg 3:2-sigur á Stuttgart í markaleik og Hoffeinheim vann Köln á útivelli með sömu markatölu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert