Lagði upp mark í Belgíu

Aron Sigurðarson í leik með USG.
Aron Sigurðarson í leik með USG. Ljósmynd/USG

Union Saint-Gilloise vann 2:0-útisigur á Lierse Kempenzonen í belgísku B-deildinni í fótbolta í dag. 

Aron Sigurðarson var í byrjunarliði USG og lék fyrstu 70 mínúturnar. Lék Aron vel og lagði upp fyrra mark liðsins á 20. mínútu. 

Er USG er öðru sæti deildarinnar með 14 stig, einu stigi á eftir toppliði Searing. Aron hefur leikið sex leiki í deildinni og skorað í þeim tvö mörk en hann gerði þrjú mörk í átta leikjum á síðustu leiktíð. 

Lék hann afar vel með Start í Noregi áður en belgíska félagið keypti hann. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert