Norska kvennalandsliðið í fótbolta hitar upp fyrir Evrópumótið á Englandi af krafti og mætti liðið Nýja-Sjálandi í vináttuleik á Ullevaal-vellinum í Ósló í dag.
Leiknum lauk með 2:0-sigri Noregs og gerði markavélin Ada Hegerberg fyrra markið á 34. mínútu. Varamaðurinn Guro Bergsvand gulltryggði svo sigurinn með marki í uppbótartíma.
Hin hálfíslenska María Þórisdóttir lék allan leikinn með Noregi. Betsy Hassett, leikmaður Stjörnunnar, lék fyrstu 75 mínúturnar með Nýja-Sjálandi.