Enn eitt stóra nafnið úr leik

Zhang Shuai mundar spaðann í leiknum á móti Wozniacki í …
Zhang Shuai mundar spaðann í leiknum á móti Wozniacki í dag. AFP

Óvænt úrslit halda áfram að líta dagsins ljós á Wimbledon-mótinu í tennis en í morgun féll hin danska Caroline Wozniacki úr leik.

Wozniacki beið lægri hlut fyrir Shuai Zhang frá Kína í 3. umferð mótsins en sú kínverska hafði betur í tveimur settum 6:4 og 6:3. Wozniacki er enn eitt stóra nafnið sem er úr leik á mótinu.

Zhang, sem er í 50. sæti á heimslistanum, hefur sýnt flotta takta á mótinu og er líkleg til afreka. Þetta er í fyrsta skipti sem henni tekst að komast í 4. umferð á Wimbledon-mótinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert