Serbinn Novak Djokovic fagnaði sigri í einliðaleik á Wimbledon-mótinu í tennis eftir sigur á Svisslendingnum Roger Federer í hreint út sagt mögnuðum úrslitaleik þar sem úrslitin réðust í oddasetti.
Djokovic, sem er 32 ára gamall, varði þar með titil sinn og fagnaði sigri á Wimbledon-mótinu í fimmta skipti í lengsta úrslitaleik í sögu mótsins. Þetta var 16. risatitill Serbans á ferlinum.
Viðureign þessara frábæru tennisleikara stóð yfir í fjórar klukkustundir og 57 mínútur. Federer hefur átta sinnum borið sigur úr býtum á Wimbledon-mótinu en hann stefndi á að vinna sinn 21 risatitil.