Lætur ljós sitt loks skína eftir skelfilegt áfall

Nate Lashley með verðlaunagripinn fyrir sigurinn á mótinu.
Nate Lashley með verðlaunagripinn fyrir sigurinn á mótinu. AFP

Tárin fengu að streyma eftir að Bandaríkjamaðurinn Nate Lashley fagnaði sínum fyrsta sigri á móti á PGA-mótaröðinni í golfi um síðustu helgi.

Brooke, systir hans, og kærastan, Ashlie Reed, voru mættar til að faðma sigurvegarann óvænta sem fékk boð á mótið örfáum dögum áður en það hófst og var í raun hættur í golfi árið 2012 og farinn að starfa sem fasteignasali.

Lashley hafði gengið illa að koma golfferlinum á flug eftir skelfilegt áfall árið 2004, þegar hann var 21 árs gamall og lék með skólaliði Arizona-háskólans. Foreldrar hans og þáverandi kærasta höfðu komið til að sjá hann keppa en á heimleiðinni fórst eins hreyfils Cessna-flugvélin sem faðir hans stýrði. Lashley varð órólegur þegar ekkert þeirra hafði haft samband daginn eftir og í kjölfarið hófst leit að flugvélinni. Brak hennar fannst þremur dögum síðar og farþegarnir þrír höfðu allir látist.

Mörg ár að komast yfir þetta

„Ég er búinn að ganga í gegnum mikið. Það tók mig mörg ár að komast yfir þetta [lát foreldranna og kærustunnar]. Þetta hélt aftur af mér andlega í langan tíma,“ sagði Lashley eftir sigurinn á sunnudaginn, og bætti við: „Ég hugsa stöðugt til foreldra minna. Án þeirra væri ég ekki í þessari stöðu sem ég er í núna.“

Mótið sem hann vann heitir Rocket Mortgage Classic og eins ótrúlega og það kann að hljóma átti Lashley upphaflega ekki að vera með á mótinu. Hann reyndi að vinna úrtökumót á mánudeginum fyrir mótið en mistókst það. Hann fékk hins vegar á endanum sæti og nýtti tækifærið til fulls með því að vinna mjög öruggan sigur, á samtals -25 höggum eða með sex högga forskot á næsta mann, Doc Redman.

Sjá greinina í heild sinni á íþróttasíðum Morgunblaðsins í dag

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert