Golfsamband Íslands hefur valið kylfinga ársins 2019. Þeir eru Guðmundur Ágúst Kristjánsson úr Golfklúbbi Reykjavíkur og Valdís Þóra Jónsdóttir úr Golfklúbbnum Leyni á Akranesi.
Þetta er í 22. skipti sem tveir einstaklingar eru valdir sem kylfingar ársins hjá GSÍ, kona og karl. Þetta er í þriðja sinn sem Valdís Þóra fær þessa viðurkenningu en í fyrsta sinn sem Guðmundur Ágúst er valinn.
Sjá nánar á vef Golfsambands Íslands.