Undanúrslit Íslandsmóts karla í handbolta fara af stað í Vestmannaeyjum kl. 18:30 í kvöld. Eyjamenn fá þá heimsókn frá Haukum. Eyjamenn unnu 2:0-sigur á ÍR í átta liða úrslitum og Haukar lögðu Íslandsmeistara Val af velli, einnig 2:0.
Liðin hafa mæst þrívegis í vetur, einu sinni í bikar og tvisvar í deild. ÍBV vann bikarundanúrslitaleik liðanna, en þau unnu sitt hvorn heimaleikinn í deildinni.
ÍBV vann deildarmeistaratitilinn með sigri á Fram í síðasta leik á meðan Haukar enduðu í 5. sæti deildarinnar og munaði fimm stigum á liðunum þegar uppi var staðið.
Þrjá sigra þarf til að tryggja sér sæti í úrslitunum.