Landsliðsfyrirliðinn á von á barni

Karen Knútsdóttir.
Karen Knútsdóttir. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Karen Knútsdóttir, fyrirliði íslenska landsliðsins í handbolta, á von á barni og mun því ekki leika meira með Fram á þessari leiktíð, hvort sem tímabilið heldur áfram eftir hlé eður ei. 

Karen greindi frá tíðindunum á Instagram. Þar kemur einnig fram að settur dagur hjá Karen sé 22. september. Kærasti Karenar er Þorgrímur Smári Ólafsson, sem einnig leikur með Fram. 

Fram var einum sigri frá því að tryggja sér deildarmeistaratitilinn þegar leikjum deildarinnar var frestað vegna kórónuveirunnar. Þá tryggði Fram sér bikarmeistaratitilinn í byrjun mánaðar og þótti sigurstranglegt í úrslitakeppninni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert