Teitur Örn Einarsson átti mjög góðan leik þegar lið hans, hið sænska Kristianstad, lagði hið slóvakíska Tatran Presov í Evrópudeildinni í handknattleik karla í kvöld.
Teitur Örn skoraði fimm mörk og gaf sjö stoðsendingar fyrir samherja sína í öruggum 32:25 sigri.
Eftir sigurinn er Kristianstad í öðru sæti B-riðils Evrópudeildarinnar með sex stig eftir fimm leiki, en hefur þó spilað fleiri leiki en öll hin liðin í riðlinum.