Anton íþróttamaður Vals 2020

Eva Halldórsdóttir varaformaður Vals, Anton Rúnarsson íþróttamaður Vals 2020 og …
Eva Halldórsdóttir varaformaður Vals, Anton Rúnarsson íþróttamaður Vals 2020 og Árni Pétur Jónsson formaður Vals Ljósmynd/Þorsteinn Ólafs

Handknattleiksmaðurinn Anton Rúnarsson er íþróttamaður ársins hjá Val. Anton hefur verið einn besti leikmaður Valsliðsins undanfarin ár. 

Anton var markahæsti leikmaður Vals á síðustu leiktíð og skoraði 120 mörk í 20 leikjum í Olísdeildinni og átti stóran þátt í að Valur varð deildarmeistari. 

Anton skoraði 17 mörk í fjórum leikjum á þessari leiktíð áður en allt mótahald var sett á ís vegna kórónuveirunnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert