Harpa Rut Jónsdóttir og stöllur í Amicitia Zürich eru komnar í 2:0 í einvígi sínu gegn Brühl um svissneska meistaratitilinn í handknattleik.
Harpa skoraði ekki í dag en þrjá sigra þarf til að verða svissneskur meistari.
Næsti leikur liðanna fer fram eftir þrjá daga og getur Amicitia tryggt sér meistaratitilinn á heimavelli.