Aron: Mun ekki láta draga mig út af vellinum

„Guðjón Valur og Óli Stef eru búnir að hækka rána helvíti mikið,“ sagði Aron Pálmarsson, fyrirliði ís­lenska karlalandsliðsins í handknattleik, í Sonum Íslands, vefþætti mbl.is sem fram­leidd­ur er af Studio M.

Aron, sem er 32 ára gamall, gengur til liðs við uppeldisfélag sitt, FH, næsta sumar eftir fjórtán ár í atvinnumennsku.

„Svo lengi sem skrokkurinn er góður og áhuginn er til staðar, þá mun ég halda áfram að spila,“ sagði Aron.

„Ég held samt að ég muni ekki láta draga mig út af vellinum,“ sagði Aron meðal annars.

Aron er í aðalhlutverki í fimmta þætti af Sonum Íslands en hægt er að horfa á þátt­inn í heild sinni með því að smella á hlekk­inn hér fyr­ir ofan eða inn á heimasíðu þáttanna sem má nálgast hér.

Aron Pálmarsson.
Aron Pálmarsson. mbl.is/Kristinn Magnusson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert