Ísland vann í kvöld glæsilegan 81:76-sigur á Finnlandi í undankeppni heimsmeistaramóts karla í körfubolta. Finnar komust mest 11 stigum yfir í seinni hálfleik en íslenska liðið neitaði að gefast upp og vann að lokum.
Leikurinn fór hægt af stað og var það ekki fyrr en í sjöunda sókn leiksins að fyrstu stigin litu dagsins ljós. Haukur Helgi Pálsson skoraði þá rétt fyrir innan þriggja stiga línuna. Ísland náði svo 17:11-forystu stuttu fyrir lok 1. leikhluta en þá tóku Finnar leikhlé og skömmu síðar voru þeir finnsku komnir með 18:17 forystu. Martin Hermannsson skoraði hins vegar þrist í blálok leikhlutans og var Ísland því yfir eftir leikhlutann, 20:18. Martin Hermannsson skoraði 11 stig í leikhlutanum og var sjóðheitur.
2. leikhluti spilaðist svipað og sá fyrri. Íslenska liðið var oftar en ekki með smá forskot, en Finnar aldrei langt undan. Við og við náðu Finnar 1-2 tveggja stiga forystu, en íslenska liðið var ávallt fljótt að snúa því sér í vil. Að loknum jöfnum leikhluta var staðan 39:38, Íslandi í vil. Martin skoraði ekki eins mikið en Hlynur Bæringsson lék mjög vel og skoraði vel undir körfunni.
Finnar fóru betur af stað í 3. leikhluta og var staðan orðin 50:43, þeim í vil þegar leikhlutinn var hálfnaður. Þess fyrir utan fengu Hlynur Bæringsson og Hörður Axel Vilhjálmsson þriðju villur sínar snemma í leikhlutanum og fóru því á bekkinn. Finnar náðu 11 stiga forskoti í stöðunni 55:44, en Íslendingar kláruðu leikhlutann nokkuð vel og minnkuðu muninn í átta stig fyrir síðasta leikhlutann, 63:55.
Íslenska liðið fór vel af stað í 4. leikhluta og skoraði fyrstu átta stig hans og jöfnuðu í leiðinni í 63:63. Finnar komust í kjölfarið í 67:63 en íslenska liðið var fljótt að jafna aftur í 67:67 þegar síðasti leikhlutinn var rétt tæplega hálfnaður og stefndi allt í æsispennandi lokamínútur. Íslenska liðið komst í 72:67 þegar fjórar mínútur voru eftir. Ísland náði svo sjö stiga forskoti, 78:71 þegar tæp mínúta var til leiksloka. Þann mun náðu Finnar ekki að vinna upp og sætur sigur leit dagsins ljós.
Martin Hermannsson var stigahæstur í íslenska liðinu með 26 stig, og átti jafnframt flestar stoðsendingar, 6 talsins. Hlynur Bæringsson gerði 14 stig og tók 12 fráköst.
Ísland, Búlgaría og Finnland eru nú öll með 4 stig í riðlinum, en Ísland er í 2. sæti vegna innbyrðisviðureigna. Tékkar eru með 6 stig á toppnum þegar keppnin er hálfnuð. Þrjú liðanna komast áfram í milliriðil.
Stig Íslands: Martin Hermannsson 26, Hlynur Bæringsson 14, Pavel Ermolinskij 8, Jón Arnór Stefánsson 7, Kristófer Acox 6, Hörður Axel Vilhjálmsson 5, Jakob Örn Sigurðarson 2, Logi Gunnarsson 2.