Tryggvi kom lítið við sögu hjá Toronto

Frá leik Toronto Raptors og New Or­le­ans Pelicans í gær.
Frá leik Toronto Raptors og New Or­le­ans Pelicans í gær. AFP

Tryggvi Snær Hlinason, landsliðsmaður í körfubolta, kom lítið við sögu í leik Toronto Raptors gegn Minnesota Timberwolves. Tryggvi er í leikmannahóp Toronto sem spilar í sumardeild NBA í Las Vegas.

Miðherjinn kom lítillega við sögu í fyrri hálfleik, spilaði í fjórar mínútur og tók eitt frákast á þeim tíma, en Toronto tapaði 103:92. Jordan Loyd var stigahæstur í liði Toronto með 19 stig en næstur á eftir honum var Malachi Richardson með 15 stig.

Toronto Raptors leikur þriðja leik sinn í deildinni annað kvöld gegn Oklahoma City Thunder en leikurinn hefst klukkan 19:30 að íslenskum tíma.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert