Bjarni Helgason
Schenkerhöllin, Úrvalsdeild karla, 12. október 2018.
Gangur leiksins:: 2:4, 2:12, 3:17, 9:21, 14:26, 22:29, 26:37, 34:43, 36:48, 39:54, 45:61, 52:64, 54:70, 58:73, 62:78, 66:84.
Haukar: Hilmar Smári Henningsson 18/4 fráköst, Marques Oliver 12/9 fráköst, Kristinn Marinósson 10/6 fráköst, Kristján Leifur Sverrisson 8, Matic Macek 7, Haukur Óskarsson 6, Hamid Dicko 3, Daði Lár Jónsson 2.
Fráköst: 21 í vörn, 10 í sókn.
ÍR: Gerald Robinson 23/15 fráköst, Justin Martin 19/8 fráköst, Sigurður Gunnar Þorsteinsson 17/6 fráköst, Hákon Örn Hjálmarsson 16/9 stoðsendingar, Matthías Orri Sigurðarson 4, Sæþór Elmar Kristjánsson 3, Benoný Svanur Sigurðsson 2.
Fráköst: 26 í vörn, 10 í sókn.
Dómarar: Kristinn Óskarsson, Davíð Tómas Tómasson, Gunnar Thor Andresson.
Áhorfendur: 50
ÍR vann sinn fyrsta sigur í Dominos-deild karla í körfuknattleik þegar liðið heimsótti Hauka í Hafnarfjörðinn en leiknum lauk með 18 stiga sigri ÍR, 84:66.
Breiðhyltingar byrjuðu leikinn betur og náðu snemma tíu stiga forskoti. Haukum tókst að minnka þann mun niður í fjögur stig um miðbik 2. leikhluta en þá settu Breiðhyltingar aftur í gír og leiddu þeir með 9 stigum í hálfleik.
ÍR-ingar byrjuðu seinni hálfleikinn af jafn miklum krafti og þann fyrri á meðan Haukarnir voru alltof seinir í gang og í lok þriðja leikhluta var munurinn orðinn sextán stig. Haukarnir reyndu hvað þeir gátu að jafna metin en þeir áttu aldrei möguleika í kvöld enda bæði sóknar- og varnarleikur liðsins slakur.
Marques Oliver var stigahæstur í liði Hauka með 12 stig, 9 fráköst og 3 stoðsendingar og næstur á eftir honum var Kristinn Marínósson með 10 stig og 6 fráköst. Gerald Robinson var stigahæstur í liði ÍR með 23 stig, 15 fráköst og tvær stoðsendingar. Justin Martin skoraði 19 stig í liði ÍR og tók 8 fráköst.
Þetta var fyrsti sigur Breiðhyltinga í deildinni í vetur og er liðið er komið í sjötta sæti deildarinnar með 2 stig en Haukar eru í áttunda sætinu, líka með 2 stig.
Haukar | 66:84 | ÍR | Opna lýsingu Loka | |
---|---|---|---|---|
99. mín. skorar | ||||
Augnablik — sæki gögn... |