Mario Matasovic, miðherji Njarðvíking,a átti skínandi góðan leik í kvöld og sýndi mikinn dugnað fyrir sitt lið þegar þeir lögðu Þórsara úr Þorlákshöfn í 1. umferð Subway-deildar karla í körfuknattleik.
Mario skilaði í hús 23 stigum, tók 5 fráköst og sendi 5 stoðsendingar. Mario sagði stóran mun á liði sínu frá síðasta leik liðanna. Töluvert meiri kraftur hafi verið í Njarðvík í kvöld og fínstillingar á leikskipulagi hafi líka skilað sér.
Það hafi sýnt sig best í varnarleiknum og að sóknarleikur liðsins hafi alltaf verið að skila sínu. Ef eitthvað megi gagnrýna þá hefði Mario viljað að Þórsarar hefðu tekið færri sóknarfráköst.
Viðtalið við hann er í meðfylgjandi myndskeiði.