Gylfi Þór sást opinberlega í fyrsta sinn

Gylfi Þór Sigurðsson er á meðal áhorfenda á Hlíðarenda.
Gylfi Þór Sigurðsson er á meðal áhorfenda á Hlíðarenda. mbl.is/Óttar Geirsson

Knattspyrnumaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson er á meðal áhorfenda á fyrsta leik Vals og Tindastóls í úrslitaeinvígi Íslandsmóts karla í körfuknattleik sem hófst fyrir skömmu á Hlíðarenda.

Þetta er í fyrsta sinn sem Gylfi Þór sést opinberlega á Íslandi eftir að hann snéri aftur til landsins hinn 20. apríl.

14. apríl tilkynntu lögregluyfirvöld í Manchester að Gylfi Þór yrði ekki ákærður fyr­ir brot gegn ólögráða ein­stak­lingi og væri því laus allra mála.

Gylfi Þór var samningsbundinn enska úrvalsdeildarfélaginu Everton þegar hann var handtekinn í júlí árið 2021.

Samn­ing­ur hans við enska úr­vals­deild­ar­fé­lagið rann út síðasta sum­ar og Gylfi hef­ur því verið án fé­lags síðan en hann var sett­ur til hliðar hjá fé­lag­inu þegar að hann var hand­tek­inn.

Gylfi Þór lék 318 leiki í ensku úrvalsdeildinni þar sem hann skoraði 67 mörk og þá á hann að baki 78 A-landsleiki fyrir Ísland þar sem hann hefur skorað 25 mörk.

mbl.is/Óttar Geirsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert