Hverjir standa á bak við olíuleitina?

(F.v.) Ole Borten Moe, olíu- og orkumálaráðherra Noregs, Graham Stewart …
(F.v.) Ole Borten Moe, olíu- og orkumálaráðherra Noregs, Graham Stewart frá Faroe Petroleum, Kristján Jóhannsson, stjórnarformaður Íslenskra kolvetna ehf, og Kjell Pedersen framkvæmdastjóri Petoro. Styrmir Kári

Fimm fyrirtæki standa á bak við hópana tvo sem fengu úthlutað leyfum til leitar og vinnslu kolvetnis á Drekasvæðinu í morgun. Talað hefur verið um þetta sem fyrsta skrefið í olíuævintýri Íslendinga. Forsvarsmenn fyrirtækjanna, auk ráðamanna, hafa þó reynt að draga úr væntingum með því að segja að olíuleit sé bæði langhlaup og að niðurstaða tilrauna og kannana þurfi ekki endilega að vera jákvæð. Það séu því ennþá miklir óvissuþættir í málinu. 

Þegar fyrstu fréttir af því hvaða fyrirtæki það væru sem stæðu á bakvið tilboðin komu í byrjun desember fjallaði mbl.is um það hverjir stæðu á bakvið fyrirtækin. Meðal annarra er þar um að ræða Jón Helga Guðmundsson í Byko, Mannvit, Olís, Verkís og hæstaréttarlögmanninn Gísla Baldur Garðarsson, sem áður var einn meirihlutaeigenda í Olís.

Kolvetni ehf. og Valiant Petroleum

Kolvetni ehf. er í Jóns Helga Guðmundssonar í Byko, Gunnlaugs Jónssonar, ráðgjafafyrirtækisins Mannvits og Terje Hagevang. Skiptast eignahlutar jafnt milli aðila en Jón Helgi og Gunnlaugur eiga jafnframt lítinn hluta í Valiant Petroleum vegna kaupa þess á Sagex Petroleum ehf. (áður GeysirPetroleum hf.) sem þeir áttu hlut í.

Valiant Petroleum er breskt félag sem er skráð á markað í London. Stærstu hluthafar félagsins eru AXA Investment Managers og stjórnendur félagsins með samtals 22,4% hlut. 

Faroe Petroleum og Íslenskt kolvetni ehf.

Þriðja umsóknin kemur frá Faroe Petroleum og Íslensku kolvetni ehf. Hið síðarnefnda er í eigu Olís, Verkís og Dreka Holding. Framkvæmdastjóri þess er Þorkell Erlingsson og í stjórn félagsins sitja Kristján Jóhannsson, stjórnarformaður, Gísli Baldur Garðarsson hæstaréttarlögmaður, Þröstur Ólafsson, Eldur Ólafsson og Valgarð Már Valgarðsson.

Faroe Petroleum er færeyskt félag sem líkt og Valiant Petroleum er skráð í kauphöllina í London, en stærsti hluthafi félagsins er Dana Petroleum. 

Jón Helgi Guðmundsson.
Jón Helgi Guðmundsson. mbl.is
Gunnlaugur Jónsson.
Gunnlaugur Jónsson. Sigurgeir Sigurðsson
(F.v.) Jan Rosnes frá Petoro, Gunnlaugur Jónsson hjá Kolvetnum ehf. …
(F.v.) Jan Rosnes frá Petoro, Gunnlaugur Jónsson hjá Kolvetnum ehf. Paul Mann frá Valiant Petroleum og Steingrímur J. Sigfússon ráðherra. Styrmir Kári
Gísli Baldur Garðarsson, stjórnarmaður í Dreka Holding, er hér fyrir …
Gísli Baldur Garðarsson, stjórnarmaður í Dreka Holding, er hér fyrir miðri mynd, en félagið er einn eigenda Íslensks kolvetnis ehf. Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Efnisorð: Drekasvæðið olía
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK