Mentor hannar viðmót fyrir spjaldtölvur

Spjaldtölvuvæðing í skólastarfi fer eins og eldur í sinu um …
Spjaldtölvuvæðing í skólastarfi fer eins og eldur í sinu um allan heim. Ljósmynd/Mentor

Mentor-kerfið  sem stór hluti foreldra, nemenda og kennara notar daglega mun taka miklum breytingum á næstunni. Fyrsti sýnilegi hluti þess er nýtt viðmót fyrir nemendur og foreldra sem sérstaklega er hannað með spjaldtölvur í huga en er einnig aðgengilegt í nýrri snjallsímum.
 Nemendur og foreldrar munu sjá nýja viðmótið þann 17. október, segir í fréttatilkynningu frá Mentor.

 Spjaldtölvuvæðing í skólastarfi fer eins og eldur í sinu um allan heim. Bækur og verkefni eru að færast yfir á rafrænt form og samskipti kennara og heimila eru stöðugt að aukast, segir í tilkynningunni.

„Mentor vinnur að yfirgripsmikilli uppfærslu kerfisins með hliðsjón af tækninýjungum sem styðja við nútíma þarfir. Við byrjum á að opna nýja kerfið fyrir nemendur og foreldra núna í október og kennarar fylgja síðan í kjölfarið smátt og smátt, segir Vaka Óttarsdóttir, framkvæmdastjóri Mentors á Íslandi,“ segir í fréttinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK