Kínversk stjórnvöld hafa gert Donald Trump Bandaríkaforseta tilboð sem felur í sér eftirgjöf í tollvernd og stóraukin kaup á bandarískum vörum sem gætu minnkað viðskiptahalla Bandaríkjanna gagnvart Kína um 200 milljarða dala sem jafngilda 21 billjón íslenskra króna.
Reuters greinir frá og byggir fréttina á frásögnum heimildarmanna sem þekkja til málsins. Einn þeirra sagði að flugvélaframleiðandinn Boeing myndi hagnast gríðarlega yrði tilboðinu tekið. Boeing er stærsti bandaríski útflytjandinn og er fjórðungur framleiðslunnar seldur til Kína.
Annar sagði að í tilboðinu væri gert ráð fyrir að tollar á innflutning ýmissa vara frá Bandaríkjunum yrðu lagðir niður en um er að ræða landbúnaðarvörur eins og svínakjöt, ávexti og vín. Virði innflutnings varanna nemur um fjórum milljörðum dala.
Bandaríkin og Kína eiga í viðræðum um hvernig viðskiptum þeirra á milli skuli háttað í framtíðinni. Bandarísk yfirvöld tilkynntu í byrjun apríl að áformað væri að leggja innflutningstolla á yfir 1.300 kínverskar vörur og vöruflokka, meðal annars sjónvörp, lækningatæki, flugvélavarahluti og rafhlöður. Kínverjar svöruðu með því að tilkynna að 25% innflutningstollar yrðu lagðir á 106 vöruflokka frá Bandaríkjunum innan skamms.
Áður höfðu verndartollar Bandaríkjamanna á ál og stál verið lagðir á innflutning að verðmæti 20 milljarðar bandaríkjadala. Svar Kínverja við þeim tollum var svo að leggja tolla á vörur og vöruflokka sem fluttir eru inn til Kína frá Bandaríkjunum fyrir 3 milljarða bandaríkjadala árlega.
Bandaríkjamenn hafa gagnrýnt hugverkaþjófnað, framleiðslu á eftirlíkingum og ósanngjarnar ívilnanir stjórnvalda, sem hafi neikvæðar afleiðingar á bandarísk fyrirtæki sem eru í samkeppni við kínversk framleiðslufyrirtæki.