Landsbankinn hefur sett upp rúbluhraðbanka í Smáralind í tilefni af heimsmeistaramótinu í fótbolta sem hefst í Rússlandi í júní.
Í rúbluhraðbankanum í Smáralind eru 1.000 rúblaseðlar og á vef bankans er hægt að fá upplýsingar um gengi rúblunnar. Rúbluhraðbankinn er á 2. hæð Smáralindar, við útganginn úr Smárabíói.
Rússneskar rúblur hafa alla jafna ekki verið fáanlegar á Íslandi en fyrsti leikur Íslands á HM verður gegn Argentínu í Moskvu þann 16. júní.