Munnlegt lögfræðiálit kom í veg fyrir sáttaferli

Már Guðmundsson seðlabankastjóri.
Már Guðmundsson seðlabankastjóri. mbl.is/Hari

Lögfræðilegt álit, sem Már Guðmundsson seðlabankastjóri vísaði til um helgina í tengslum við mál Samherja, var munnlegt. Már sagðist hafa rætt um að setja málið í sáttaferli en samkvæmt lögfræðiáliti mátti það ekki.

Þetta kemur fram í svari upplýsingafulltrúa Seðlabankans við fyrirspurn mbl.is.

Hæstirétt­ur staðfesti fyrr í mánuðinum dóm Héraðsdóms Reykja­vík­ur frá því í apríl í fyrra um að felld skyldi úr gildi 15 millj­óna króna stjórn­valds­sekt sem Seðlabanki Íslands lagði á fyr­ir­tækið Sam­herja fyr­ir brot á gjald­eyr­is­lög­um.

„Okk­ur ber að kæra, við upp­fyll­um það, ef rök­studd­ur grun­ur er; við eig­um ekki að leggja mat á það hvað er best fyr­ir okk­ur. Þetta er bara ótví­ræð skylda,“ sagði Már í Sprengisandi á Bylgjunni á sunnudag.

Már sagði enn fremur að þegar hann spurði hvort ekki væri hægt að setja svona mál í sáttaferli hafi verið kallað á hæstaréttarlögmann sem sagði að það mætti ekki; þá væri hann að brjóta lögin. Hon­um hafi því borið að kæra þótt aðeins lægi fyr­ir grun­ur um brot. 

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Sam­herja, sagði í samtali við Morgunblaðið að hann efist um að Már hafi nokkurn tímann íhugað að fara með málið í sáttaferli. Sam­herji und­ir­býr nú skaðabóta­mál á hend­ur Seðlabank­an­um, sem Þor­steinn tel­ur hafa rekið málið gegn Sam­herja af ill­um vilja.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Loka