Fjármálaeftirlitið varar við viðskiptum við eistneskt fyrirtæki sem hefur boðið íslenskum fjárfestum að eiga gjaldeyrisviðskipti. Fyrirtækið er ekki með leyfi til að veita fjárfestingarþjónustu á Íslandi og hafa yfirvöld í Bretlandi áður sent út viðvörun vegna þessa sama fyrirtækis.
Fyrirtækið nefnist Leadernet og er skráð í Eistlandi.
Í tilkynningu á vef Fjármálaeftirlitsins er lögð áhersla á mikilvægi þess að fjárfestar kynni sér vel þá aðila sem þeir ákveða að eiga viðskipti við og afli sér upplýsinga um þann kostnað sem fylgi viðskiptunum.