Innflutningsvernd á kartöflum felld niður

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur fallist á tillögu ráðgjafanefndar um inn- og útflutning að fella niður innflutningsvernd á kartöflum á tímabilinu 3. maí til 11. ágúst 2019 þar sem framboð á kartöflum þykir ekki nægjanlegt sbr. ákvæði 65. gr. A. búvörulaga nr. 99/1993.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá atvinnuvegaráðuneytinu.

Fram kemur, að í byrjun apríl hafi ráðgjafanefnd um inn- og útflutning landbúnaðarvara borist tilkynning um skort á kartöflum.

„Í kjölfarið var leitað upplýsinga hjá bæði framleiðendum og dreifingaraðilum kartaflna. Fylgst var grannt með stöðu mála og nýverið lagði nefndin til við ráðherra að verndin yrði felld niður á fyrrgreindu tímabili.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK