Bónus hefur kolefnisjafnað rekstur verslana sinna fyrir síðasta ár, en samningur þess efnis var undirritaður af fulltrúum Bónus og Kolviðar í dag. Bónus er fyrsta matvöruverslun á Íslandi sem kolefnisjafnar rekstur sinn.
Kolefnisfótspor Bónus árið 2018 var 667 CO2 tonn og mun Kolviður því planta 6.670 trjám á um það bil tveggja hektara svæði til að jafna út kolefnisfótsporið.
Í tilkynningu frá Bónus kemur fram að í upphafi árs hófst vinna við að safna saman gögnum um hvert kolefnisspor verslana Bónus um land allt fyrir árið 2018. Reiknisvinnunni er nú lokið með aðstoð hugbúnaðarfyrirtækisins Klappir Grænar Lausnir hf.
Umhverfisstjórnunarhugbúnaður fyrirtækisins hefur verið innleiddur inn í verklag Bónus sem mun hjálpa fyrirtækinu að ná enn betri árangri í umhverfismálum. Bónus hefur því fjárfest í kolefnisbindingu hjá Kolviði til að jafna út áhrif rekstursins á umhverfið.
„Umhverfisvernd er eitt af stærstu verkefnum samtímans, og með þessu vill Bónus leggja sitt af mörkum og sýna um leið samfélagslega ábyrgð í verki,“ segir í tilkynningu frá Bónus.