Aðeins 2,85 milljónir fengust upp í samtals 296 milljóna kröfur í þrotabú Morgundags, útgáfufélags Fréttatímans, en félagið var úrskurðað gjaldþrota í júní 2017.
Samkvæmt auglýsingu sem birt var í Lögbirtingablaðinu voru forgangskröfur 60,39 milljónir og fengust greiddar 2,85 milljónir, eða 4,7% upp í þær. Almennar kröfur námu 236,4 milljónum en ekkert fékkst greitt upp í þær.
Síðasta tölublað Fréttatímans kom út 7. apríl 2017, en tilraunir til að endurskipuleggja reksturinn og endurreisa blaðið báru ekki árangur. Þá hafði hluti starfsmanna ekki enn fengið greidd laun fyrir marsmánuð.
Gunnar Smári Egilsson, eigandi og fyrrverandi ritstjóri Fréttatímans, hafði þá stigið til hliðar og hætt afskiptum af útgáfunni.
Launakröfur eru forgangskröfur við gjaldþrot fyrirtækja sem þýðir að slíkar kröfur eru greiddar fyrst séu einhverjar eignir fyrir hendi í þrotabúinu. Ef þrotabúið er hins vegar eignalaust eru launakröfur tryggðar hjá Ábyrgðarsjóði launa. Hann tryggir hins vegar ekki laun fólks nema að takmörkuðu leyti, eða upp að 385 þúsund krónum á mánuði.