Hagar endurgreiða hlutabætur

Stjórn Haga ákvað í dag að endurgreiða Vinnumálastofnun allan þann …
Stjórn Haga ákvað í dag að endurgreiða Vinnumálastofnun allan þann kostnað sem féll til vegna starfsfólks dótturfyrirtækja Haga sem nýttu sér hlutabótaleiðina í aprílmánuði, samtals 36 milljónir króna. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Stjórn Haga ákvað í dag að endurgreiða Vinnumálastofnun allan þann kostnað sem féll til vegna starfsfólks dótturfyrirtækja Haga sem nýttu sér hlutabótaleiðina í aprílmánuði, samtals 36 milljónir króna. Starfsfólkinu verður sömuleiðis boðið að fara aftur í það starfshlutfall sem áður var. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu sem send var út rétt í þessu. 

Bæði forsætis- og fjármálaráðherra segja það óviðunandi og slæmt að stöndug fyrirtæki nýti sér hlutabótaleið stjórnvalda á sama tíma og þá hafa greitt út arð. 

Þrjú þeirra, það er Hagar, Festi og Skeljungur, hafa nú tilkynnt að þau ætli hætta að nýta sér hlutabótaleiðina. 

Áhrifin minni en óttast var í upphafi

Fram kemur í tilkynningu Haga að mikil óvissa hafi ríkt í verslun og þjóðfélaginu öllu þegar ákvörðun um að nýta hlutabótaleið ríkisstjórnar var tekin innan Haga, í þessu tilfelli Zöru, Útilíf og veitingasölu Olís. 

„Var það gert til að forðast uppsagnir og viðhalda ráðningasambandi við starfsfólk eftir fremsta megni. Önnur dótturfyrirtæki Haga nýttu sér ekki þessa leið, t.a.m. Bónus, Hagkaup, vöruhúsin Aðföng og Bananar, lyfjaverslanir og framleiðslustöðvar. Ekki hefur þurft að grípa til uppsagna innan samstæðunnar vegna Covid 19.“

Í tilkynningunni segir að á þessum tímapunkti sé betur hægt að sjá þau áhrif sem faraldurinn mun hafa á félagið í heild og eru þau minni en óttast var í upphafi. Nú telst því rétt að endurgreiða þá fjárhæð sem Vinnumálastofnun greiddi til starfsfólks Haga í aprílmánuði.

Einnig tók stjórn Haga ákvörðun um að ljúka endurkaupaáætlun eigin hluta fyrr en áætlað var en áætlunin hefur verið í gildi frá 28. febrúar sl. Áætlað var að endurkaup myndu nema 500 milljónum króna að hámarki en félagið hefur þegar keypt eigin hluti skv. áætluninni að fjárhæð 450 milljónir króna.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK