„Það var gott að eiga þvottahús ríkisspítalanna að þegar kom upp eldur árið 2014 í húsnæði okkar í Skeifunni og allt brann til kaldra kola. Þá hlupu þau undir bagga og tóku við stóru verkefnunum okkar tímabundið.“
Þetta segir Ari Guðmundsson en þvottahús ríkisspítalanna annaðist stærstu viðskiptavini Fannar í fimm mánuði, þar til fyrirtækið náði vopnum sínum á nýjan leik. Fönn er nú í hópi framúrskarandi fyrirtækja samkvæmt lista Creditinfo.
Fönn – Þvottaþjónustan er stærsta einkarekna þvottahús landsins og er nú rekið í stóru og rúmgóðu húsnæði í Árbænum. Vöxtur starfseminnar hefur numið 4-5% á ári hin síðari ár.
Ari segir að allt hafi endað vel hjá Fönn eftir eldsvoðann. „Við náðum að halda áfram að sinna okkar viðskiptavinum og byrjuðum að sækja þvott strax tveimur dögum eftir brunann. Starfsfólkið dreifði sér á sjö staði og við þvoðum hingað og þangað um bæinn. Þarna sýndi sig hvað við erum með fábært fólk í vinnu sem var tilbúið að leggja allt á sig til að halda rekstrinum gangandi.“
Spurður út í framþróun á því sviði sem fyrirtækið starfar svarar Ari því til að breytingar séu almennt ekki miklar. Hins vegar hafi tölvutæknin opnað á nýja nálgun í þvotti.
Til dæmis eru vélarnar okkar tengdar beint til framleiðanda vélanna, þannig að ef eitthvað er að geta þeir lesið af þeim og látið okkur vita hvað það er sem gera þarf við. Þá er öll sápuskömmtun inn á vélarnar orðin sjálfvirk og hægt að aðlaga skömmtun á sápu fyrir hvern viðskiptavin ef svo ber undir. Með þessari tækni er hægt að draga úr ofnotkun á þvottaefnum sem oft á sér stað.“