Yfir 150 þúsund ferðamenn hafa komið til Íslands með Icelandair í sumar. Þá flugu um 45 þúsund fleiri með félaginu í ágúst en júlí.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair.
Ríflega 264.000 farþegar flugu með félaginu í ágúst, samanborið við tæplega 80.000 farþega á sama tíma í fyrra. Þar af voru farþegar í millilandaflugi rúmlega 241.000 samanborið við um 67.000 í ágúst 2020.
Farþegar í innanlandsflugi voru 22.600 samanborið við 12.400 á sama tíma í fyrra. Farþegum í innanlandsflugi hefur fjölgað um 55% það sem af er ári miðað við sama tímabil í fyrra.