Íslenska hugbúnaðarfyrirtækið SalesCloud hefur ráðið til sín fjóra nýja starfsmenn, þau Maríu Björk Gísladóttur, Friðrik Má Jensson, Pálma Þormóðsson og Rúnar Leví Jóhannsson.
María Björk er ráðin til að hafa yfirumsjón með bókhaldi félagsins en hún er viðurkenndur bókari og er um þessar mundir að ljúka BS-gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum á Bifröst.
Friðrik Már Jensson hefur verið ráðinn í innleiðingardeild SalesCloud og mun þar sjá um innleiðingar á viðskiptalausnum félagsins. Friðrik er með BA-gráðu í kvikmyndafræði, diplómu í vefmiðlun og meistaragráðu í hagnýtri menningarmiðlun frá Háskóla Íslands.
Pálmi Þormóðsson er ráðinn í starf forritara í þróunardeild SalesCloud en hann er menntaður tölvunarfræðingur frá Háskólanum í Reykjavík.
Rúnar Leví Jóhannsson er sömuleiðis ráðinn forritari en hann stundar nám í hugbúnaðarverkfræði við Háskólann í Reykjavík.
Haft er eftir Helga Andra Jónssyni, framkvæmdastjóra SalesCloud, að ráðningarnar komi til samhliða auknum umsvifum félagsins.