Ársfundur atvinnulífsins fer fram í dag kl 15:00, en yfirskrift fundarins í ár er Fyrirtækin okkar í aðdraganda kjaraviðræðna. Meðal þeirra sem taka til máls eru Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og Ole Erik Almlid, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins í Noregi (NHO) sem gefur okkur innsýn í kjarasamningslíkan Norðmanna.
Hægt er að fylgjast með fundinum í beinu streymi hér að neðan, en áætlað er að heildardagskráin verði um 60 mínútur.
Auk Katrínar og Almlid munu Eyjólfur Árni Rafnsson, formaður SA og Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA vera með erindi.