Hopp fékk Vaxtasprotann

Frá afhendingu Vaxtarsprotans í Grasagarðinum í Laugardal. Á myndinni eru, …
Frá afhendingu Vaxtarsprotans í Grasagarðinum í Laugardal. Á myndinni eru, talið frá vinstri, Katrín Sif Oddgeirsdóttir verkefnastjóri atvinnulífstengsla hjá HR, Eiríkur Nilson meðstofnandi Hopp, Ágúst Hjörtur Ingþórsson forstöðumaður Rannís, Katrín Atladóttir vörustjóri Dohop, Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri SI, Ingunn Tryggvadóttir vörustjóri Dohop, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Eyþór Máni Steinarsson framkvæmdastjóri og meðstofnandi Hopp, Árni Sigurjónsson formaður SI, Hildur Hjaltalín Jónsdóttir rekstrarstjóri Hopp, Kolbrún Hrafnkelsdóttir stofnandi Florealis og í stjórn Samtaka sprotafyrirtækja, Ægir Þorsteinsson meðstofnandi Hopp, Nanna Elísa Jakobsdóttir viðskiptastjóri á iðnaðar- og hugverkasviði SI, Hallgrímur Björnsson fjármálastjóri Lauf Forks og Svandís Unnur Sigurðardóttir, sérfræðingur á rannsókna- og nýsköpunarsviði Rannís. Mynd/BIG

Fyrirtækið Hopp var í gær valið Vaxtarsproti ársins fyrir öfluga uppbyggingu sprotafyrirtækis. Vaxtarsprotinn er samstarfsverkefni Samtaka iðnaðarins, Samtaka sprotafyrirtækja, Háskólans í Reykjavík og Rannsóknarmiðstöðvar Íslands.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, afhenti Vaxtarsprotann.

Hopp þróar sem kunnugt er hugbúnað sem gerir fólki kleift að opna Hopp útibú með sérleyfi (e. franchise) á sínum heimaslóðum. Í dag eru virk sérleyfi Hopp í 56 bæjum í 12 löndum. Í rökstuðningi valnefndar kemur fram að Hopp á engar rafskútur, en sjálfstæð fyrirtæki eru rekin undir heiti Hopp í hverju bæjarfélagi. Fyrirtækin gera samninga við Hopp um rekstur á hugbúnaði og þjónustu vegna hans. Hopp er nú þegar skráð vörumerki í fjölmörgum löndum og meirihluti tekna fyrirtækisins eru útflutningstekjur. Velta fyrirtækisins jókst um 970% á milli áranna 2021 og 2022 þegar veltan fór úr 72 milljónum króna í 770 milljónir króna.

Tvö önnur fyrirtæki, Dohop og Lauf Forks, hlutu einnig viðurkenningar.

Dohop hlaut viðurkenningu fyrir góðan vöxt í flokki fyrirtækja með 100-1.000 milljónir króna í veltu fyrra árs. Velta fyrirtækisins jókst um 265% á milli ára, fór úr 300 milljónum króna í 1,1 milljarð króna milli 2021 og 2022. Auk þess hlaut Dohop viðurkenningu fyrir að ná í fyrsta sinn veltu yfir einn milljarð á árinu 2022. Dohop er hugbúnaðarfyrirtæki sem vinnur með flugfélögum og býr til bókunarkerfi fyrir þau með áherslu á tengiflug. Dohop starfar með um 70 flugfélögum um allan heim. Allar tekjur félagsins koma erlendis frá.

Lauf Forks hlaut viðurkenningu fyrir að ná veltu í fyrsta skipti yfir einum milljarði króna á síðasta ári en fyrirtækið fór úr 924 milljóna króna veltu árið 2021 í 1,4 milljarða króna veltu árið 2022, en 95% af tekjum félagsins koma erlendis frá. Lauf Forks þróar, framleiðir og selur reiðhjól, en fyrirtækið var stofnað í kringum þróun á einstökum fjöðrunargaffli fyrir reiðhjól. Sérstaða vöru fyrirtækisins er byggð á þekkingu sem upprunalega varð til í rannsóknum og þróun hjá stoðtækjafyrirtækinu Össuri. Félagið vinnur nú að uppsetningu á samsetningarverksmiðju í Virginíu í Bandaríkjunum, en þar er stærsti markaður félagsins.

Á myndinni eru, talið frá vinstri, Katrín Sif Oddgeirsdóttir verkefnastjóri …
Á myndinni eru, talið frá vinstri, Katrín Sif Oddgeirsdóttir verkefnastjóri atvinnulífstengsla hjá HR, Eiríkur Nilson meðstofnandi Hopp, Ágúst Hjörtur Ingþórsson forstöðumaður Rannís, Katrín Atladóttir vörustjóri Dohop, Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri SI, Ingunn Tryggvadóttir vörustjóri Dohop, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Eyþór Máni Steinarsson framkvæmdastjóri og meðstofnandi Hopp, Árni Sigurjónsson formaður SI, Hildur Hjaltalín Jónsdóttir rekstrarstjóri Hopp, Kolbrún Hrafnkelsdóttir stofnandi Florealis og í stjórn Samtaka sprotafyrirtækja, Ægir Þorsteinsson meðstofnandi Hopp, Nanna Elísa Jakobsdóttir viðskiptastjóri á iðnaðar- og hugverkasviði SI, Hallgrímur Björnsson fjármálastjóri Lauf Forks og Svandís Unnur Sigurðardóttir, sérfræðingur á rannsókna- og nýsköpunarsviði Rannís. Mynd/BIG
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK