„Við vorum töluvert austar þegar fréttir bárust af því vart hefði orðið við vaðandi makríl suður af Hvalbak. Við vorum ekki komnir á svæðið fyrr en undir kvöld í gærkvöldi og náðum að taka eitt 260 tonna hol áður en haldið var til Vopnafjarðar,“ segir Hjalti Einarsson, skipstjóri á Víkingi AK.
Fram kemur á vef HB Granda að togarinn hafi komið til Vopnafjarðar í morgun með tæplega 900 tonna afla. Þar af hafi makrílaflinn verið um 750 tonn.
Hjalti segir makrílveiðina hafa verið sveiflukennda en þó hafi komið góð skot í veiðina inn á milli. Í gær hafi menn orðið varir við töluvert magn suður af Hvalbak og hafa skipin verið þar að veiðum.
Að hans sögn hefur síld ekki verið til mikilla vandræða sem aukaafli með makrílnum fram að þessu. Þó hafi síld fengist í einu holinu í veiðiferðinni.
„Við reynum að sneiða hjá síldinni á makrílveiðunum enda hefjast síldveiðar væntanlega ekki fyrr en hreinum makrílveiðum lýkur,“ sagði Hjalti, sem á von á því að taka muni tæpa tvo sólarhringa að landa afla úr skipinu. Því komist Víkingur væntanlega aftur á miðin á fimmtudag.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 18.9.24 | 561,35 kr/kg |
Þorskur, slægður | 18.9.24 | 601,90 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 18.9.24 | 245,22 kr/kg |
Ýsa, slægð | 18.9.24 | 294,73 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 18.9.24 | 221,87 kr/kg |
Ufsi, slægður | 18.9.24 | 284,94 kr/kg |
Djúpkarfi | 12.9.24 | 378,00 kr/kg |
Gullkarfi | 18.9.24 | 275,09 kr/kg |
Litli karfi | 16.9.24 | 10,34 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 18.9.24 | 314,00 kr/kg |
18.9.24 Geir ÞH 150 Dragnót | |
---|---|
Ýsa | 20.939 kg |
Skarkoli | 505 kg |
Þorskur | 191 kg |
Steinbítur | 30 kg |
Samtals | 21.665 kg |
18.9.24 Bárður SH 81 Dragnót | |
---|---|
Ýsa | 4.702 kg |
Þorskur | 3.032 kg |
Langlúra | 147 kg |
Ufsi | 60 kg |
Karfi | 44 kg |
Sandkoli | 41 kg |
Samtals | 8.026 kg |
18.9.24 Egill ÍS 77 Dragnót | |
---|---|
Þorskur | 4.556 kg |
Skarkoli | 2.602 kg |
Ýsa | 2.186 kg |
Steinbítur | 196 kg |
Sandkoli | 95 kg |
Samtals | 9.635 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 18.9.24 | 561,35 kr/kg |
Þorskur, slægður | 18.9.24 | 601,90 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 18.9.24 | 245,22 kr/kg |
Ýsa, slægð | 18.9.24 | 294,73 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 18.9.24 | 221,87 kr/kg |
Ufsi, slægður | 18.9.24 | 284,94 kr/kg |
Djúpkarfi | 12.9.24 | 378,00 kr/kg |
Gullkarfi | 18.9.24 | 275,09 kr/kg |
Litli karfi | 16.9.24 | 10,34 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 18.9.24 | 314,00 kr/kg |
18.9.24 Geir ÞH 150 Dragnót | |
---|---|
Ýsa | 20.939 kg |
Skarkoli | 505 kg |
Þorskur | 191 kg |
Steinbítur | 30 kg |
Samtals | 21.665 kg |
18.9.24 Bárður SH 81 Dragnót | |
---|---|
Ýsa | 4.702 kg |
Þorskur | 3.032 kg |
Langlúra | 147 kg |
Ufsi | 60 kg |
Karfi | 44 kg |
Sandkoli | 41 kg |
Samtals | 8.026 kg |
18.9.24 Egill ÍS 77 Dragnót | |
---|---|
Þorskur | 4.556 kg |
Skarkoli | 2.602 kg |
Ýsa | 2.186 kg |
Steinbítur | 196 kg |
Sandkoli | 95 kg |
Samtals | 9.635 kg |